Author Archives: Jóhannes Birgir

Sko fyrst ég er útskrifuð

Í Mogganum í dag birtist stutt og óhemju hallærisleg grein eftir Sigþrúði Ármanns sem mig grunar að sé litla systir Birgis Ármanns.

Þar greinir stúlkan frá því að hún sé nú útskrifuð úr Háskóla Íslands, hún hafi þar borgað 30.000 kr fyrir hvert skólaár en kostað skattborgara 300.000 kr. Henni finnist því tilvalið að hækka skólagjöldin til að leiðrétta þennan “halla”.

Er það bara ég eða er hrikalega hallærislegt að koma fram með þetta þegar maður er útskrifaður og þarf auðvitað ekki að borga hærri skólagjöld!

Háskólinn ætti að vera ódýr fyrir námsmenn. Skattarnir fara í margt vitlausara en menntun Íslendinga. Sjálfur er ég við HR þar sem við borgum sex sinnum meira í skólagjöld en við HÍ en það er mitt val að fara í dýrari háskóla. Aðrir ættu að hafa þann valkost að fara í ódýrari ef þeir vilja. Menntun er mannréttindi, ekki forréttindi.

Grænfriðungasvikari?

Sjúkt að gera í skólanum. Bandbrjálað. Get ekki beðið eftir að útskrifast! Fyrst verð ég nú að ná samt…

Tengill dagsins er á grein um manninn sem var meðal stofnenda Greenpeace en berst núna fyrir genabreyttum matvælum og kjarnorku.

Stóri kjötbitinn

Þar sem Sigurrós skrapp til mæðgnanna austur fyrir fjall þá hef ég eldað fyrir einn. Sigurrós keypti fínar nautalundir handa mér áður en hún fór og í dag eldaði ég þær í hádegismat.

Smellti þeim á fínu grillpönnuna okkar og útkoman var himnesk! Aukaverkunin var sú að ég angaði af kjötlykt, brasið var ævintýralegt en svínvirkaði, þegar ég kom niður í skóla. Stúlkurnar urðu allar glorhungraðar greyin.

Gelymdi að minnast á þetta um daginn. Vísindamenn fordæma aðgerðir Bush og félaga að breyta niðurstöðum, falsa og fleira fínerí.

Ofurmódelið

Tók matarpásu í kvöld frá verkefnavinnu og stakk úrslitaþætti America’s Next Top Model í myndbandstækið. Hef ekki séð nema 10 mínútur samtals af þessari seríu en ákvað nú að tékka á þessu svona til að aðeins hreinsa heilann.

Það var víst hún Adrianne sem vann og allt í fínu með það. Nokkuð eðlileg stelpa.

Fyndið að sjá Tyru Banks “ausa” úr viskubrunni sínum, fyrrverandi fyrirsætan er svo skondin. “But honey I didn’t vote for you” var svarið þegar henni var þakkað fyrir, ekki gat hún sagt “Congratulations” onei.

Næsta þáttaröð er víst byrjuð í Ameríkunni, ætti maður að fylgjast með hávöxnum vannærðum stúlkum láta brjóta sig niður þegar sú sería kemur hingað?

Lykt í geimnum

Wired eru magnaðir við að grafa upp áhugaverða hluti sem fæstir myndu pæla í! Greinin um þefarann fyrir NASA er fín. Magnað starf og eitthvað sem fæstum dytti í hug að þyrfti að sinna.

Hefðbundin byrjun!

Svona byrja trúarbrögðin!

Lubbalaus

Útréttingadagur. Fór í klippingu og á meðan að á henni stóð sungu ungir drengir “Það var einu sinni api” og svo aðrir nokkru seinna “Love me tender”. Að launum fengu þeir karamellu og sleikipinna.

Jack Valenti, head of the Motion Picture Association of America, has suggested that consumers have no legitimate need for such software, telling The Associated Press in November, “If you buy a DVD you have a copy. If you want a backup copy you buy another one.” (src)

Alltaf hress kallinn, hunsar lög sem leyfa mönnum að taka afrit af eigin eigum!

Soy el diablo

Þar sem ég sat í matsalnum í dag fannst mér ég kannast við baksvipinn á stúlku við næsta borð. Á þriðjudögum er víst “Spænska borðið” alltaf í matsalnum í HR, þar hittist fólk og talar eingöngu spænsku.

Jújú, þegar hún stóð upp til að fara sá ég að jú, þetta var hún Lora.

Ég gældi við þá undarlegu tilhugsun að ganga til hennar og kynna mig með orðunum Soy el diablo svona til að athuga hvort hún þekkti mig með lubba og án horna.

Ákvað að það gæti litið undarlega út fyrir alla spænskumælandi þannig að ég sleppti því í þetta skiptið.

Snilldartónlist

Das Palast Orchestra hafa ásamt söngvaranum Max Raabe dælt út af miklum móð dægurlögum sem þeir hafa sett í búning 30’s laga. Hægt er að hlusta á tóndæmi, eins og Lady Marmalade, Sexbomb og Bongo Bongo með því að fara á vef þeirra, velja næstneðsta takkann til vinstri og velja svo “Greatest hits” diskana í glugganum sem opnast því næst.

Algjör snilld!

Eðli áfanga

Undarlegur þessi erfiði stærðfræðiáfangi sem maður er í. Ekki nóg með að námsefnið sé að finna í einum 6 bókum held ég, og farið mjög hratt yfir mörg mismunandi svið stærðfræðinnar, heldur eru tvö forritunarverkefni sem á að skila!

Andvökunótt framundan, súper.