Idol og Svínasúpa

Kíkti í dag til pabba og Daða. Haukur var á svæðinu þannig að ég náði að óska öllum gleðilegs árs.

Við Sigurrós kíktum svo inn í Kringluna vopnuð gjafabréfunum sem við fengum í jólagjöf. Okkur leist nú ekki alveg á þetta þegar við sáum að útsölur voru byrjaðar og að auki lokað í flestöllum búðum vegna talningar. Við náðum þó að hlaupa inn og út úr Hagkaup og Pennanum með það sem við ætluðum að fá.

Í kvöld litum við í kvöldmat og sjónvarpsgláp hjá Erni, Regínu og Ísari Loga sem við höfum ekki hitt síðan hann nefndist Snúri.

Sáum okkar fyrsta Idol-þátt og Svínasúpuna. Nokkur þokkaleg atriði og nokkur léleg, engin argandi snilld en ekki verri en hver Spaugstofa.

Comments are closed.