Vinakvöld

Fórum í kvöld á Laugarás að snæða góðan mat með Stefu og Rúnari. Ég fékk medium rare steik þó að pöntunin hljóðaði upp á aðeins meira steikt en var fínt þrátt fyrir það. Reyndar fannst mér skandall að þeir bjóða ekki upp á aspassúpu eða álíka.

Eftir matinn héldum við í bæinn þar sem við virtum nokkrar myndir á Austurvelli fyrir okkur, gengum því næst í gegnum bæinn, kíktum á tívolíið og Stefa fór í stóru róluna á meðan að ég tók fyrsta myndbandið á nýju vélina okkar af henni og hinum rólubúunum. Á eftir að sjá hvernig það kom út

Svo héldum við aftur í gegnum bæinn og enduðum á Litla andarunganum þar sem við spjölluðum með glös og bolla við hönd. Fínt kvöld með fínu fólki. C’est la vie.

Comments are closed.