Real Madrid og Leverkusen mætast víst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Ég er vel sáttur við það, það væri sorglegt þó ef að Leverkusen tapaði bæði þeim leik og næðu ekki að verða þýskir meistarar, hrikalegt að hiksta svona á lokasprettinum.
Íslendingur sem gengur undir nafninu Óli Jóh er á leiðinni á þennan úrslitaleik í Glasgow. Óska honum til hamingju.
Stoke komnir í úrslitaleik um sæti í 1. deildinni. Þar mæta þeir öðru íslendingaliði, Brentford.
Ég er búinn að vera í skólanum í dag þannig af sjálfum mér er lítið að frétta, ætla þó að passa mig á því að vaka ekki svona frameftir nóttu yfir mynd á vídjói, eins og við Sigurrós gerðum í nótt. Ekki nógu sniðugt.
Áhugavert: