Jóhannes Birgir Jensson
"Riddari Bjargvættur"
Forsíða - Dagbók - {Vefgátt} - Óskalisti - .rss - <A>
Apríl 2003
Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30
Dagbók
12. apríl 2003
Sófahershöfðinginn

Í morgun gerði ég undantekningu á reglu sem ég hef yfirleitt í heiðri. Ég hef það sumsé fyrir reglu að lesa aldrei þruglið sem kemur frá Birni Bjarnasyni í miðopnu Morgunblaðsins, það grætir mig yfirleitt að sjá skoðanir þessa manns sem er ekki eingöngu fyrrverandi ráðherra heldur einnig núverandi alþingismaður og borgarfulltrúi (of margir sem sitja þannig beggja megin borðs).

Í dag var það innrásin í Írak sem Björn var að rifna af stolti yfir. Hann fordæmir svo sófahershöfðingjana sem hafa látið í ljós efasemdir um útfærslu hinnar guðlegu dýrðlegu innrásar sem var gerð til þess að...
Bíddu.. hver var aftur ástæðan? Ég er alveg búinn að gleyma hvaða afsökun þeir notuðu síðast. Birni er nákvæmlega sama enda klæjar hann illilega í að komast í slátrunina sjálfur.

Björn Bjarnason er nefnilega maðurinn sem að vill ólmur að Íslendingar eignist sinn eigin her og ætli hann, Sófahershöfðingi Íslands, verði ekki fyrsti hershöfðingi þess hers?

Þetta stríð er rangt ekki eingöngu vegna láts óbreyttra borgara heldur líka vegna þess að hegðun Bandaríkjanna jafnast nú fyllilega á við Sovétríkin gömlu. Ég bendi á litla frétt í Morgunblaðinu þar sem segir:
"lista 55 Íraka sem Bandaríkjaher gaf út í gær og fyrirskipaði að Írakarnir á listanum skyldu annað hvort handsamaðir eða drepnir"
Það er ekkert flóknara en það, gefinn út aftökulisti. Engir stríðsdómstólar, engin réttarhöld, engar sannanir. Bara hreinn og klár aftökulisti. Stríðsglæpum Bandaríkjanna fer ógvænlega fjölgandi. Fangarnir á Guantanamo sitja enn í einangrun og án lögfræðiþjónustu.

Velkomin í heim nýmálsins (newspeak, sjá bókina 1984) þar sem valdhafar skipta út orðum fyrir bull sem kemur þeim betur, þar sem hermenn eru ólöglegir bardagamenn og því ekki undir neina sáttmála seldir, þar sem herinn heldur ekki uppi lög og reglu á stöðum þar sem hann sprengir yfirvöld í tætlur, þar sem aftökulistar eru gefnir út, þar sem eldflaugum er skotið á mannmarga staði til að drepa aðila án dóms og laga. Frá Dýrabæ (Animal Farm) kemur svo Ísland, gaggandi hæna í liði með svínunum sem eru að slátra öllum sem ekki eru svín.

Þetta er verra en á hinum myrku miðöldum, þetta er að verða hreinasta helvíti.

#
<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>